Makríll (Scomber scombrus) |
- Veiddur í Norður Atlantshafi frá Júní - September
- Gerð vöru: Frosinn í heilu og H/G. Stæður frystar og IQF.
- Veiðisvæði: FAO 27
Makríll (Scomber scombrus) getur orðið allt að 60 cm á lengd en algengast er að hann sé á bilinu 35-45 cm. Makríllinn ber þess merki að vera mikill sundfiskur, hann er rennilegur í vexti, gildastur um miðjuna og mjókkar til sporðs og kjafts. Hann er oftast grænn eða blár á baki með 30-35 dökkum hlykkjóttum rákum eftir endilöngu baki. Kviðurinn er hvítur og perlugljáandi. Makríllinn finnst í Miðjarðarhafi, Svartahafi og í Norður-Atlantshafi frá Madeira og Azoreyjum norður að Noregsströndum. Undanfarin ár hefur hann í vaxandi mæli gengið inn í íslensku efnahagslögsöguna samfara auknum hlýindum í hafinu umhverfis landið. Sumarið 2010 var talið að meira en milljón tonn hafi gengið inn í lögsöguna.
|

|
|