- Ufsi er aðallega veiddur af togurum í norður Atlantshafi í kringum Ísland.
- Gerð vöru: Aðskilin flök og hraðfrystar lendur og hlutar.
- Veiðitímabil: Allt árið um kring
- Veiðisvæði: FAO 27
Heimkynni ufsans eru í Norður-Atlantshafs. Í Norðaustur-Atlantshafi er norðan frá Barentshafi suður í Biskajaflóa. Í Norðvestur-Atlantshafi finnst hann við Grænland og við austurströnd Norður-Ameríku frá Hudsonsundi suður til Norður-Karólínu. Ufsinn er allt í kringum Ísland en mun algengari í hlýja sjónum sunnan- og suðvestanlands en undan Norður- og Austurlandi. Ufsinn er ýmist uppsjávar- eða botnfiskur. Hann er á öllu dýpi frá yfirborði og niður á 450 metra dýpi en er algengastur niður á 200 m. Hann heldur sig yfirleitt í 4-12°C heitum sjó. Hann er gjarnan upp um allan sjó og yfir grýttum botni og sandbotni, en einnig yfir kóröllum og svampbotni en síður á leirbotni. Ufsinn fer oft um hafið í stórum torfum í ætisleit og merkingar sýna að mikill flækingur er á honum. Hann flækist m.a. frá Íslandi til Færeyja, Noregs, Skotlands og suður í Norðursjó og ufsar heimsækja okkur frá Noregi og Færeyjum.
|

|
|