- Þorskur er að mestu veiddur af togurum og línubátum í Norður Atlantshafi
- Gerð vöru: Aðskilin hraðfryst flök, hraðfrystar lendur og stykki ásamt kössum
- Veiðitímabil: Allt árið um kring
- Veiðisvæði: FAO 27
Heimkynni þorsksins eru í Norður-Atlantshafi. Í Norðaustur-Atlantshafi er hann frá Svalbarða í Barentshafi suður í Biskajaflóa. Í Norðvestur-Atlantshafi er þorskur við Grænland og frá Hudsonflóa og Baffinslandi suður til Hatterashöfða í Bandaríkjunum. Hér við land er þorskur algengur allt í kringum landið. Hann er botnfiskur sem lifir á allt frá nokkurra metra dýpi niður á 600 metra eða dýpra en er algengastur á 100-400 metra dýpi. Þorskurinn heldur sig bæði á sand- og leirbotni, sem og á hraunbotni. Einnig þvælist hann upp um sjó í ætisleit eða við hrygningu.
|
 |
|