Ýsa (Melanogrammus aeglefinus) |
- Ýsa (Melanogrammus aeglefinus) er aðallega veidd af togurum og línubátum í norður Atlantshafi
- Gerð vöru: Hraðfryst flök, hraðfrystar lendur og bitar
- Veiðitímabil: Allt árið um kring
- Veiðisvæði: FAO 27
Heimkynni ýsu eru í Norður-Atlantshafi. Í Norðaustur-Atlantshafi er hún í Norður-Íshafi og Barentshafi og allt suður í Biskajaflóa. Við Grænland er hún sjaldséð en í Norðvestur-Atlantshafi er hún frá Nýfundnalandi til Hatterashöfða í Bandaríkjunum. Við Ísland er ýsan allt í kringum landið. Mun meira er um hana við sunnan- og vestanvert landið en í kalda sjónum norðanlands og austan. Oft er og mikið um ýsu við Ingólfshöfða, Dyrhólaey og Vestmannaeyjar auk Faxaflóa, í Breiðafirði og við Ísafjarðardjúp. Ýsan er grunnsævis- og botnfiskur sem lifir á 10-200 metra dýpi og stundum dýpra á leir- og sandbotni.
|
 |
|